Laxinn er mættur í Norðurá

Lax­inn er mætt­ur í Norðurá. Það staðfest­ist í dag þegar Brynj­ar Þór Hreggviðsson einn um­sjón­ar­manna ár­inn­ar fór í könn­un­ar­leiðang­ur ásamt Birki Mar Harðar­syni leiðsögu­manni. Þeir sáu um það bil 80 sentí­metra fisk á Berg­hyls­broti og svo var lax líka að skvetta sér á Eyr­inni, neðan Lax­foss. 

„Maður veðrast all­ur upp við að sjá þá. Við kíkt­um líka á Stokk­hyls­brotið, en þar var gára svo við gát­um ekki skyggnt það hundrað pró­sent. Þetta er í fyrra fall­inu. Við höf­um oft verið að sjá þá 25. til 27. maí, þá fyrstu. Von­andi eru þetta góð fyr­ir­heit fyr­ir sum­arið,“ sagði Brynj­ar í sam­tali við Sporðaköst.

Fyr­ir miðri mynd má sjá silfraðan tveggja ára lax. Þetta er Berg­hyls­brotið 21. maí og 21 gráða. Þeir fé­lag­ar Binni og Birk­ir sá líka lax skvetta sér á Eyr­inni. Ljós­mynd/​Brynj­ar Þór

mbl.is – Veiði · Lesa meira