Þrír fyrstu laxarnir í Miðfjarðará komu á land eftir hádegi. Einn í Kambsfossi og tveir veiddust í Spenastreng í Austurá. „Þeir koma,“ sagði Rafn Valur Alfreðsson leigutaki í samtali við Sporðaköst, eftir morgunvaktina og var alveg rólegur. Og þeir komu.
Rafn veiddi sjálfur annan af löxunum sem veiddust í Spenastreng. Hinn laxinn fékk Hilmir Víglundsson og Valgarður Ragnarsson landaði laxi í Kambsfossi. Laxinn var á hreyfingu og sást fjölga fiskum til dæmis undir Kambsfossi.
Rafn með lax úr Spenastreng sem kom eftir hádegi. Honum til halds og trausts er Stefán Ákason. Ljósmynd/Jóhann Birgisson
mbl.is – Veiði · Lesa meira