Öðruvísi mér áður brá. Veiðimenn sem opnuðu Miðfjarðará og Laxá í Kjós lönduðu engum laxi í morgun. Sett var í nokkra laxa í báðum ám en enginn kom á land. Í Kjarrá lönduðu veiðimenn fimm löxum og misstu fjóra.
Í Kjarrá vissu menn að fyrsta vorgangan var komin upp eftir. Það stóð líka heima að þar setti meistari Tóti tönn í þann fyrsta nánast í fyrsta kasti í Réttarhyl. Reyndist vera 80 sentímetra hrygna. Þessi 87 ára höfðingi gaf þar með tóninn. Þá veiddust fjórir aðrir laxar og voru þeir allir áþekkir að stærð og sá sem Tóti fékk. Fjórir laxar misstust og heilt yfir voru menn sáttir með þessa fyrstu vakt. Veitt er á sjö stangir í Kjarrá og stendur opnun þar í þrjá og hálfan dag. Ingólfur Ásgeirsson leigutaki segir að það sé gert svo allar stangir nái öllum svæðum tvisvar. „Vatnið núna í Kjarrá er eins og gott júlí vatn, segja þeir sem best þekkja til.“
Birgir Örn Brynjólfsson með lax sem hann fékk í morgun í Kjarrá á Gilsbakkaeyrum. Fimm komu á land þar á opnunarvakt. Ljósmynd/Ingólfur Ásgeirsson
mbl.is – Veiði · Lesa meira