„Of stór skammtur af september í sumar“

Þrátt fyrir að veiðin hafi víða verið góð í síðustu viku sjást merki um að sumarið er að eldast. Ytri–Rangá heldur toppsætinu og engin á er að fara að ógna því þetta árið. Veiðin þar var þriðju vikuna í röð yfir fjögur hundruð laxar.

Aðeins of mikill september í þessu segir Reynir Friðriksson leiðsögumaður við Vatnsdalsá. Vel hefur veiðst í Vatnsdalsá miðað við í fyrra og er hún komin yfir lokatölu síðasta árs. Ljósmynd/Reynir Friðriksson

mbl.is – Veiði · Lesa meira