Pöddurnar með þann fyrsta úr Brennu

Fyrsti lax­inn úr Brenn­unni, sem er neðsta svæði Þver­ár í Borg­ar­f­irði kom á land í morg­un. Þar var að verki kvenna­hóp­ur­inn Veiðipödd­urn­ar. Hrönn Jóns­dótt­ir setti í og landaði 76 sentí­metra hæng. „Hann var kysst­ur bless og send­ur beint upp í Kjar­rá,“ upp­lýsti Hrönn al­sæl með lax­inn.

Veiðipödd­urn­ar opna Brenn­una í ár. Þær eru Kjar­rár­kon­ur og eiga það sam­eig­in­legt að hafa unnið í veiðihús­inu við Kjar­rá á ein­hverj­um tíma. Þess vegna var fyrsti lax­inn send­ur beint þangað upp eft­ir.

Hrönn Jónsdóttir með fyrsta laxinn úr Brennunni þetta árið. 76 sentímetra hængur sem tók Valbein túbu. Þessi er á leiðinni upp í Kjarrá. Ljósmynd/Veiðipöddur

mbl.is – Veiði · Lesa meira