Allir áttu von á góðum göngum af stórlaxi í upphafi veiðitímans. Sú von virðist ekki vera að ganga eftir. Óhætt er að segja að rauð flögg eru á lofti í byrjun veiðitíma, eftir góða byrjun í Norðurá og Þverá.
Laxá í Kjós hefur ekki enn komist á blað, en veiði þar hófst síðastliðinn sunnudagsmorgun. Laxá í Leirársveit núllaði fyrsta daginn, en óstaðfestar fréttir herma að sá fyrsti hafi komið á land í morgun. Þeir byrjuðu að veiða í gærmorgun.
Fyrsta vakt í Grímsá gaf engan lax. Dagurinn þar er þó ekki að kveldi kominn og þar hafa sést fiskar á nokkrum stöðum.
Veiðin í Norðurá hefur verið virkilega róleg eftir opnunina og er hún 45% minni en á sama tíma í fyrra. Nú hefur verið landað þar 66 löxum en voru 120 á þjóðhátíðardaginn í fyrra.
Við Norðurá! Mikil aukning varð á smálaxi sumarið 2024. Það á að þýða mikið af tveggja ára laxi í sumar. Ljósmynd/AÞ
mbl.is – Veiði · Lesa meira