„Rúmlega magnað að sé mættur í Jöklu“

Laxveiðin hefst form­lega á sunnu­dag þó svo að fyrsti lax­inn hafi þegar komið á land. Urriðafoss opn­ar 1. júní og er veru­leg spenna far­in að mynd­ast hjá veiðifólki. Norðurá opn­ar svo nokkr­um dög­um síðar. Lax­inn er mætt­ur í Norðurá og hef­ur sést á nokkr­um stöðum síðustu daga. Í dag sást sá fyrsti í Laxá í Kjós. Kom­inn upp í Poka­foss, sem er veiðistaður of­ar­lega í ánni. Í því vatni sem nú er í Kjós­inni er oft­ar en ekki sem hann strauj­ar upp ána við þægi­leg­ar aðstæður.

Ekki hef­ur sést lax í Urriðafossi og þar sem Þjórsá er býsna lituð sést hann ekki nema hann stökkvi. Stefán Sig­urðsson, leigutaki opn­ar á sunnu­dag ásamt land­eig­end­um. Stór­streymi er á morg­un og afar lík­legt að það sé ávís­un á að gott líf verði í Urriðafossi á sunnu­dag. Stefán birti mynd­band af aðstæðum á face­book og vissu­lega er hún lituð en það horf­ir til betri veg­ar.

Þarna er sá fyrsti staðfestur í Kjósinni í Pokafossi. Laxinn sést greinilega og alltaf jafn upplífgandi sjón. Ljósmynd/Laxá í Kjós

mbl.is – Veiði · Lesa meira