Sá silfraði er víða að flýta sér

Frétt­ir af snemm­gengn­um löx­um halda áfram að ber­ast. Varla var búið að setja niður laxa­telj­ar­ann í Langá þegar 72 sentí­metra hrygna skaust í gegn. Þykk­ur og fal­leg­ur vor­lax. Árnefnd í Sandá í Þistil­f­irði er að störf­um og full­yrða nefnd­ar­menn að lax sé mætt­ur þar.

Sig­urður Már Ein­ars­son fiski­fræðing­ur og helsti sér­fræðing­ur þjóðar­inn­ar í lax­fisk­um á Vest­ur­landi sagði, „Vorið er svo ynd­is­leg­ur tími og maður veðrast all­ur upp þegar þeir fyrstu mæta,“ þegar hann var spurður um lax­inn sem gekk upp Skugga­foss og sjá má á mynd­band­inu sem fylg­ir frétt­inni. Sig­urður var ekki viss um hvort þetta væri það fyrsta sem hann myndi eft­ir þegar kem­ur að laxi í Langá. „Þetta er alla­vega óvenju snemmt og ég man ekki eft­ir staðfest­um fiski fyrr. Hér spil­ar nátt­úru­lega inn í gott vor og mik­il hlý­indi þannig að árn­ar og líka sjór­inn hafa verið með hlýrra móti og það skipt­ir máli.“

Sig­urður seg­ir að sjáv­ar­hiti núna sé hærri en oft hef­ur verið og vís­ar hann þar til þess mikla sólfars sem verið hef­ur í maí. Það hafi líka áhrif á sjó­inn. „Svo er það þekkt að lax­inn fer frek­ar í hindr­an­ir þegar vatns­hiti er orðinn sex til sjö gráður. Göngu­tími í all­ar ár á Íslandi hef­ur verið að fær­ast fram­ar und­an­far­in ár og senni­lega má rekja það til hlýn­un­ar.“

Foss­brotið efsti veiðistaður í Sandá, sem hægt er að veiða af ein­hverju viti. Þegar hann ligg­ur á og við brotið er það oft­ar en ekki töku­fisk­ur. Ljós­mynd/Ó​laf­ur Finn­boga­son

mbl.is – Veiði · Lesa meira