Semja til tíu ára um Eystri Rangá

Eft­ir mikið áfall þegar um sex hundruð þúsund kviðpoka­seiði dráp­ust í seiðaeld­is­stöð Veiðifé­lags Eystri Rangár, tel­ur ný formaður fé­lags­ins að mál­um verði bjargað. Ný­lega var und­ir­ritaður tíu ára samn­ing­ur við nú­ver­andi leigu­taka um veiðirétt í ánni og jafn­framt tek­ur leigutaki yfir seiðaeld­is­stöðina að Eyjalandi og ann­ast rekst­ur­inn.

Hörður Þór­halls­son er nýr formaður Veiðifé­lags Eystri Rangár. Óhætt er að segja að hann taki við á um­brota­tím­um. Byrj­um á seiðadauðanum. Er hægt að bæta slíkt áfall eft­ir á?

„Auðvitað var þetta mik­ill skaði fyr­ir okk­ur. En það drapst ekki allt og við erum í sam­tali við systurána okk­ur um að hlaupa und­ir bagga með okk­ur. Þannig að við telj­um okk­ur kom­ast í gegn­um þetta,“ upp­lýsti Hörður í sam­tali við Sporðaköst.

Peter Rippin leigutaki í Eystri með lax úr ánni. Nú hefur verið samþykktur nýr tíu ára leigusamningur milli félags Peters Rippin, og Veiðifélags Eystri Rangár. Ljósmynd/Kolskeggur

mbl.is – Veiði · Lesa meira