Stærsta holl í tíu ár í Laxá á Ásum

Veiðin í Laxá á Ásum hefur verið mjög góð og stöðug síðustu daga. Þannig endaði síðasta þriggja daga holl með 102 laxa. Veitt er á fjórar stangir í Ásunum og verður þetta að teljast mokveiði.

Hann er á í veiðistaðnum Tuma í Laxá á Ásum. Síðasta þriggja daga holl í Ásunum fór yfir hundrað laxa. Ljósmynd/SB

mbl.is – Veiði · Lesa meira