Stofninum ógnað úr ýmsum áttum

Þær eru ófá­ar hætt­urn­ar sem steðja að Atlants­hafslaxa­stofn­in­um í Nor­egi um þess­ar mund­ir. Nú hafa áhrif lax­eld­is og hlýn­andi lofts­lags skákað áhrif­um vatns­afls­virkj­ana á stofn­inn og verður það meðal ann­ars til þess að laxveiðimenn sækja í meira mæli til Íslands.

Þetta seg­ir Tor Haakon Bakk­en, pró­fess­or við Norska tækni­há­skól­ann (NTNU), en hann hef­ur rann­sakað og fjallað um sjálf­bæra þróun vatns­afls, hlut­verk lóna­kerfa í vatns­auðlinda­stjórn­un, áhrif virkj­ana á nátt­úr­una og áhrif lofts­lags­breyt­inga á vatna­kerfi.

Bakk­en er einn aðal­fyr­ir­les­ar­inn á Nor­rænu vatna­fræðiráðstefn­unni sem fór fram í Grósku en í fyr­ir­lestri sín­um í dag ræddi hann meðal ann­ars stöðu Atlants­hafslax­ins í Nor­egi.

Í sam­tali við mbl.is seg­ir hann að það að rann­saka stöðu laxa­stofns­ins geti verið dýr­mætt

„Það er hægt að horfa á stöðu villta lax­ins sem góðan vísi að stöðu líf­rík­is­ins. Ef laxa­stofn­inn held­ur sér vel er líf­ríkið í góðum mál­um.“

Tor Haakon Bakken, prófessor við Norska tækniháskólann. mbl.is/Eggert Jóhannesson

mbl.is – Veiði · Lesa meira