Stubbur á starfsdegi landaði níu löxum

Síðasta föstudag var starfsdagur í leikskólanum hjá Júlíusi Þór Jónssyni fjögurra ára. Hann hafði nákvæmlega engar áhyggjur af því og beið þess sem verða vildi. Það eru frekar foreldrar sem glíma við hausverkinn, hvernig eigum við að leysa þennan dag?

Áhyggjulaus að missa úr einn dag með félögum sínum. Skellti Júlíus sér bara í Grímsá með pabba og þeir fengu níu laxa. Ljósmynd/Jón Þór Júlíusson

mbl.is – Veiði · Lesa meira