Svipuð – jafnvel betri veiði en í fyrra

„Vís­bend­ing­arn­ar sem við erum með er að við erum að koma upp úr öldu­dal. Það var góð smá­laxa­veiði í fyrra og stór­lax­inn af þeim ár­gangi á eft­ir að koma og þar verður stærri hlut­inn hrygn­ur. Vís­bend­ing­ar af þeim gögn­um sem við höf­um er það að við verðum nærri eða kannski aðeins ofar en við sáum á síðasta ári. En svo skal ég koma með loka­spá í sept­em­ber,“ sagði Guðni Guðbergs­son á fundi sem Haf­rann­sókna­stofn­un boðaði til í vik­unni und­ir yf­ir­skrift­inni Upp­takt­ur að veiðisumri. Guðni var þarna að svara spurn­ing­unni, hvernig verður laxveiðin í sum­ar? Spá­dóm­ur í sept­em­ber vakti kátínu hjá fund­ar­gest­um enda vita all­ir að erfitt er að spá ná­kvæm­lega fyr­ir veiðina. En Guðni flutti er­indi á fund­in­um þar sem hann fór yfir stöðu helstu fiski­stofna sem stang­veiðimenn elt­ast við. Guðni er sviðsstjóri ferskvatns– og eld­is­sviðs Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. 

Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun segir að við séum á leið upp úr öldudal, þegar kemur að laxveiðinni. Ljósmynd/Sporðaköst

mbl.is – Veiði · Lesa meira