Tenórinn kom Dölunum í Þúsund

Stórtenórinn Elmar Gilbertsson setti í og landaði fallegum laxi í Laxá í Dölum seinnipartinn í gær. Ekki ýkja merkilegt, en þegar betur var gáð reyndist þessi lax þúsundasti laxinn í sumar. Það var því tenórinn sem smellti Daladrottningunni í fjögurra stafa tölu.

Elmar Gilbertsson söngvari og veiðimaður með þúsundasta laxinn úr Laxá í Dölum. Ljósmynd/Skjöldur Skjaldarson

mbl.is – Veiði · Lesa meira