Þrír á fyrsta klukkutímanum í Miðfirði

Þremur löxum hefur verið landað fyrsta klukkutímann í opnun í Miðfjarðará. Tveir hafa komið á land í Austuránni og einn í Vesturá. Í fyrsta kasti í Hlaupum fékk breski veiðimaðurinn Mark 87 sentímetra lax í Hlaupunum og þar sáust fleiri laxar.

Andrew með lúsugan fyrsta lax úr Vesturá í Miðfirði. Ljósmynd/Rafn Valur

mbl.is – Veiði · Lesa meira