Veiðistríðið um Iðuna heldur áfram

Veiðistríðið um veiðisvæðið Iðuna, eins og veiðisvæðið er kallað held­ur áfram. Iðumenn hafa selt veiðileyfi á svæðið í sum­ar en Stóru–Laxár­menn hafa lýst því yfir að svæðið verði hluti af veiðisvæði Stóru-Laxár í sum­ar. Iðan er svæðið þar sem Stóra Laxá mæt­ir Hvítá. Þar hef­ur um ára­bil verið veitt á þrjár stang­ir.

Nú ligg­ur fyr­ir krafa Stóru Laxár­deild­ar sem er und­ir regn­hlíf­inni Veiðifé­lag Árnes­inga, um nýtt ósamat. Það mál er fyr­ir mats­nefnd sem kveðið er á um í lög­um um lax– og sil­ungsveiði í lög­um núm­er 61/​2006. Í októ­ber í fyrra óskaði Stóru–Laxár­deild­in og Finn­ur B. Harðar­son, land­eig­andi að Ásbrekku við Stóru–Laxá að nefnd­in tæki fyr­ir beiðni um ósa­af­mörk­un Stóru–Laxár í Hrepp­um gagn­vart Hvítá.

Fyr­ir­taka í mál­inu var hjá mats­nefnd­inni 21. janú­ar og svo aft­ur í mars. Á fund­ina voru boðaðir all­ir þeir sem gætu átt hags­muna að gæta. Kom fram hjá Iðumönn­um að þeir töldu að Finn­ur og Stóru–Laxár­deild­in gætu ekki verið aðilar máls­ins og var það byggt á samn­ingi um veiðina á Iðu, frá 1978.

Ármót Stóru-Laxár og Hvítár. Um veiðirétt á svæðinu var gerður samningur 1978 sem nú hefur verið sagt upp. Ljósmynd/Finnur Harðarson

mbl.is – Veiði · Lesa meira