Ýmist í ökla eða eyra í minni ánum

Veiðin í minni laxveiðiánum skiptist í tvö horn. Margar þeirra hafa gefið mun betri veiði en á sama tíma í fyrra á meðan að aðrar eru að eiga erfitt ár. Hér að neðan má sjá stöðuna í 28 laxveiðiám, samanborið við veiðina í fyrra.

Haukadalsá hefur gefið mun betri veiði í sumar en í fyrra. Ekki skemmir þegar svona höfðingjar eru í boði. 102 sentímetrar sem Ármann Andri Einarsson landaði í gær úr veiðistaðnum Blóta. Ljósmynd/SVFR

mbl.is – Veiði · Lesa meira