Hundruð fiska dauðir í þurrum farvegi

Grenlækur er þornaður upp á stórum kafla og hundruð sjóbirtinga hafa drepist. Víða eru fiskar í litlum pollum sem munu þorna og fleiri fiskar drepast á næstu sólarhringum. Þetta er umhverfisslys sem endurtekur sig nokkuð reglulega og síðast gerðist þetta vorið 2021.

Farvegur Grenlæks er þornaður upp á löngum kafla og mikið af sjóbirtingi drepist eins og gefur að skilja. Ljósmynd/Maros Zatko

mbl.is – Veiði · Lesa meira