„Það er veisla, það er veisla. Við erum að landa þrettánda fisknum,“ sagði Árni Friðleifsson, lögregluþjónn í samtali við Sporðaköst þegar við náðum tali af honum í opnun Mývatnssveitarinnar nú skömmu fyrir hádegi. Mývatnssveitin opnaði formlega í morgun og það er enn einn áfanginn í átt að því að veiðisumarið sé komið á fullt.
Árni Friðleifsson er fastagestur í opnun Mývatnssveitar og hefur verið það í fjöldamörg ár. Hann og Emil Örn sonur hans eru að veiða Hofstaði og eru bara í veislu. „Við byrjuðum í Pollinum og erum nú í Langhólma og það er mikið líf. Fiskurinn er gríðarlega vel haldinn og við höfum verið að fá þetta mest á púpur. Babbann, Moppuna og Pheasant tail. Allt hefðbundið,“ upplýsti Árni.
Hann er á í Mývatnssveit í morgun. Grænir bakkar, mikið af rjúpu og spikfeitur urriði. Lífið er veisla í Mývatnssveit. Ljósmynd/Árni Friðleifsson
mbl.is – Veiði · Lesa meira