Álftavatn er á hálendinu fyrir norðan Mýrdalsjökul á milli Torfajökuls og Tindafjallajökuls. Það er í um 530 metra hæð yfir sjávarmáli og er um 1.12 km² að flatarmáli. Vatnið liggur við “Laugaveginn”, gönguleiðina á milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Við vatnið stendur skáli Ferðafélags Íslands, ásamt öðrum húsum sem reist voru árið 1979 og rúma 58 manns. Álftavatn er ofsetið af smárri bleikju, sem var á sínum tíma sleppt í vatnið þar sem það var talið fisklaust. Veiddust mjög vænar bleikjur í Álftavatni í nokkur ár stuttu eftir sleppingarnar. En svo fór sem fór, vatnið var illa sótt, ekki veitt þar í net og það því brátt ofsetið. Urriða var sleppt í vatnið til að láta reyna á grisjun. Hann stækkaði nokkuð en ekki er vitað hvort grisjun á bleikjunni hafi tekist með þeim sleppingum. Þrátt fyrir allt getur verið gaman í fögru umhverfi að leika sér að bleikjunni þarna og unga kynslóðin, sem er að stíga sín fyrstu skref í veiði, getur unað sér vel við vatnið.