Fremri Laxá er ein af betri urriðaám landsins. Sá fjöldi urriða sem gengur í ána yfir sumarmánuðina er gríðarlegur og oft er veiðin það mikil að veiðimenn tapa fljótt tölunni á fjölda fiska. Urriðinn í Fremri Laxá er ekki stór, yfirleitt 1 ~ 1.5 pund, en hann er sterkur og sprækur. Eitthvað af urriðum á bilinu 50-60 cm veiðast þó á hverju ári. Áin er fremur nett veiðiá, kjörin fyrir fluguna og ekki síður þurrfluguna. Á hverju sumri veiðast nokkrir laxar í Fremri Laxá. Sem dæmi um það veiddust 28 laxar sumarið 2010, 47 laxar sumarið 2013 og 40 laxar 2015. Í gegnum tíðina hafa hóparnir sem sækja ánna heim verið henni mjög trúir og komið ár eftir ár enda er hún fjölskylduvæn með góðu aðgengi að mörgum góðum hyljum. Veitt er í 2 – 3 daga í senn. Meðalveiði er um 3800 urriðar og 30 laxar á sumri.
Flott veiði í fremri Laxá
„Við vorum að koma úr opunarhollinu í Fremri Laxá á Ásum og fengum 93 urriða, en þetta er þriðja skiptið sem við opnum ána og þetta er besta veiðin hjá