Þetta er spennandi svæði og hefur verið sérstaklega vinsælt hjá litlum hópum og fjölskyldum. Þarna er eingöngu veitt á flugu, í stórkostlegri náttúru, og vegna þess hve veiðistaðirnir eru fjölbreytilegir ætti svæðið að henta öllum sem heimsækja það. Grjótá er lítil og viðkvæm á sem rennur að hluta til í gljúfri og þar ber að varast að styggja laxinn. Gott veiðihús fylgir veiðileyfum.