Hlíðarvatn í Selvogi – SVH

Suðurland
Eigandi myndar: svh.is

Veiðitímabil

01 maí – 15 september

Leyfilegt agn

Fluga, Spúnn

Fjöldi stanga

5 stangir

Kvóti

Ótakmarkað

Gistimöguleikar

Veiðihús

Leiðsögn

ekki í boði

Aðgengi

Fyrir byrjendur, Fjölskylduvænt, Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi

Verðbil

heill dagur

4200 kr. – 13000 kr.

Tegundir

Veiðin

Híðarvatn í Selvogi hefur um árabil verið eitt af gjöfulustu sjóbleikjuvötnum landsins. Mesta dýpi þess er um 5 metrar og að flatarmáli er það rúmir 3,3 km2. Afrennsli þess er um Vogsós en vatnið sprettur upp úr hrauninu um ótal uppsprettur. Hlíðarvatn er afar gjöfult veiðivatn og þar veiðast á sumri hverju bleikjur í þúsundatali. Þar er um að ræða staðbundinn fisk sem þykir afar ljúffengur og skemmtilegur við að eiga. Flestir eru fiskarnir 0,5-1 pund en á sumri hverju veiðast fáeinir 5 punda fiskar og jafnvel stærri. Auk sjóbleikunnar hefur stöku lax veiðst í vatninu.

Stangveiðifélag Hafnarfjarðar er með til umráðar 5 stangir í Hlíðarvatni og gott veiðihús. Í maí, júní og júlí eru seldar stakar stangir en í ágúst og september eru allar stangirnar seldar saman.

Gisting & aðstaða

Veiðihús

SVH er með gott veiðihús við vatnið. Í því er snyrting, 2 herbergi m/ 4 kojum, eldhús (með: gashellu, borðbúnaði og áhöldum), setustofa og gott úti-kolagrill. Veiðimenn þurfa að taka með sér rúmfatnað eða svefnpoka, borðtuskur og viskastykki. Veiðikort liggur frammi i veiðihúsi (sjá r) og einnig má finna þar veiðibók.

Veiðireglur

Veiðimenn mega koma í húsið kl.18.00 daginn fyrir skráðan veiðidag, og skulu vera  farnir fyrir kl. 18.00 á síðasta veiðidegi. Muna þarf að ræsta hús og taka með sér allt rusl. Lausaganga hunda við vatnið er stranglega bönnuð.

Kort og leiðarlýsingar

Veiða má í öllu vatninu

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Þórlákshöfn: 26 km, Selfoss: 52 km, Hafnarfjörður: 40 km, Reykjavík: 57 km og Akureyri: 446 km

Veiðileyfi og upplýsingar

Félagar í SVH fá úthlutað, eftir það eru öll leyfi á www.leyfi.is

Daglegur veiðitími

24 klukkustundir

Staðsetning

Suðurland

Fréttir af veiði Hlíðarvatn í Selvogi – SVH

Einu sinni veitt þarna áður

„Hlíðarvatn í Selvogi er skemmtilegt vatn og við sáum fiska vaka á nokkrum stöðum en ég hef veitt þarna einu sinni áður, en það var í september í fyrra,“ sagði Hilmar Þór

Lesa meira »
Shopping Basket