Hraunsfjarðarvatn

Vesturland
Eigandi myndar: Ólöf Eyjólfsdóttir – Hótel Rjúkandi
Calendar

Veiðitímabil

01 júní – 30 september

Bait

Leyfilegt agn

Fluga, Maðkur, Spúnn
Stop

Kvóti

Ótakmarkað
Information

Leiðsögn

ekki í boði
Accessibility

Aðgengi

Þarfnast leyfi, Jepplingar, Einungis fótgangandi
Dollar

Verðbil

heill dagur

9900 kr. – 9900 kr.

Tegundir

Veiðin

Hraunsfjarðarvatn er um 2,5 km² að stærð og 84 m djúpt, þar sem það er dýpst. Það er í um 207 m hæð yfir sjávarmáli. Þaðan rennur Vatná í Baulárvallavatn. Nýja vatnaleiðin á Snæfellsnesi gerir það að verkum að hægt er að aka nær alveg upp að vatninu á vegaslóða en síðasta spölinn þarf að fara fótgangandi (15 mín.) Slóði þessi er einungis fær fjórhjóladrifnum bílum. Hraunsfjarðarvatn er einungis með urriða sem gjarnan er vænn. Meðalþyngd fiska er 2-3 pund en algengt er að þar veiðist stærri fiskar, 5-6 pund, einkum í ljósaskiptunum. Fiskur getur legið djúpt og þá þarf að sökkva agninu. Spónn og maðkur gefa að jafnaði ágæta veiði. Í ljósaskiptunum ferðast urriðinn inn á grunnið við landið og er þá gott að nota flugu.

Gisting & aðstaða

Gistihús

Tjaldstæði

Hægt er að tjalda endurgjaldslaust við vatnið en þar er engin sérstök hreinlætisaðstaða.

Veiðireglur

Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl og ganga vel um. Korthafar þurfa að skrá sig í Vegamótum og sýna þarf bæði Veiðikortið og persónuskilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.

Stangarverðið sem gefið er upp hér á síðunni er fullt gjald fyrir Veiðikortið. Vissulega er sá möguleiki fyrir hendi að eignast það fyrir minni tilkostnað, t.d. í gegnum stéttarfélag.

Kort og leiðarlýsingar

Veiða má í öllu vatninu og er þar jafnan góð veiði allt sumarið, sér í lagi í ljósaskiptunum.

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Stykkishólmur: 24 km, Borgarnes: 78 km, Reykjavík: 153 km og Akureyri: 388 km

Veitingastaðir

Áhugaverðir staðir

Kirkjufell: 34 km, Snæfellsjökull: 74 km og Arnarstapi: 68 km

Veiðileyfi og upplýsingar

Vatnið er hluti af Veiðikortinu

Daglegur veiðitími

Staðsetning

Vesturland

Fréttir af veiði Hraunsfjarðarvatn

Engin nýleg veiði er á Hraunsfjarðarvatn!

Shopping Basket