Stóra-Laxá fellur um 90 km leið, frá Grænavatni niður á milli Hrunamanna- og Gnúpverjahrepps, í Hvítá hjá Iðu. Hún er dragá, all vatnsmikil með um 512 km2 vatnasvið. Stóra-Laxá er laxgeng langt inn í Laxárgljúfur, því er landslag með henni bæði fjölbreytt og mikilfenglegt. Ánni er skipt í 4 veiðisvæði með alls 10 stöngum. Seldir eru stakir dagar í ána, frá hádegi til hádegis. Meðalveiði er um 1000 laxar en sumarið 2013 var metveiði þegar 1764 laxar komu á land.
Svæði III er stórskemmtilegt tveggja stanga svæði sem er tilvalið fyrir litla hópa eða góða veiðifélaga. Það getur verið krefjandi en að sama skapi mjög líflegt þegar aukinn kraftur færist í veiðina á haustdögum.