Stóra-Laxá III

Suðurland
Eigandi myndar: lax-a.is
Calendar

Veiðitímabil

27 júní – 30 september

Bait

Leyfilegt agn

Fluga
Fishing rod

Fjöldi stanga

2 stangir
Stop

Kvóti

Veitt/sleppt

Gistimöguleikar

Veiðihús
Information

Leiðsögn

Í boði
Accessibility

Aðgengi

Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi, Jepplingar
Dollar

Verðbil

heill dagur

Tegundir

Lax

Veiðin

Stóra-Laxá fellur um 90 km leið, frá Grænavatni niður á milli Hrunamanna- og Gnúpverjahrepps, í Hvítá hjá Iðu. Hún er dragá, all vatnsmikil með um 512 km2 vatnasvið. Stóra-Laxá er laxgeng langt inn í Laxárgljúfur, því er landslag með henni bæði fjölbreytt og mikilfenglegt. Ánni er skipt í 4 veiðisvæði með alls 10 stöngum.  Seldir eru stakir dagar í ána, frá hádegi til hádegis. Meðalveiði er um 1000 laxar en sumarið 2013 var metveiði þegar 1764 laxar komu á land. 

Svæði III er stórskemmtilegt tveggja stanga svæði sem er tilvalið fyrir litla hópa eða góða veiðifélaga. Það getur verið krefjandi en að sama skapi mjög líflegt þegar aukinn kraftur færist í veiðina á haustdögum.  

Gisting & aðstaða

Veiðihús

Húsið er ágætt með gistirými fyrir fjóra í 2 svefnherbergjum.  Í húsinu er ágætt eldhús og fínasta baðaðstaða. Á palli við húsið stendur grill og þar er einnig heitur pottur. Einnig er aðstaða með aðgerðarborði og slöngu. Sængur og koddar eru í veiðihúsinu, en menn leggja sjálfir til sængurföt og einnig baðhandklæði, tuskur og viskastykki.  Veiðimönnum er heimilt að koma í hús klukkutíma fyrir veiði og ber að skila húsinu hreinu klukkutíma eftir að veiði þeirra lýkur. Veiðibók er í veiðihúsinu, skylt er að skrá afla daglega.

Kort og leiðarlýsingar

Beygt er af Suðurlandsvegi inn á Skeiðaveg (í átt að Flúðum). Síðan aftur til hægri inn á Þjórsárdalsveg eftir að farið er fram hjá Sandlæk. Stuttu eftir að farið er yfir Kálfá er beygt til vinstri inn á Hælisveg. Ekið er framhjá bænum Hæli og allt að bænum Hlíð. Farið er um hlaðið þar á bæ og liggur vegurinn heim að veiðihúsinu. Fara þarf varlega um hlaðið því þar geta verið börn og dýr.

Veiðisvæðið nær frá Undirgangi niður á ós, að báðum stöðum meðtöldum

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Flúðir: 20 km, Selfoss: 50 km, Reykjavík: 113 km og Akureyri: 482 km.

Áhugaverðir staðir

Flúðir: Gamla Laugin  Þjórsárdalur: Hjálparfoss, Háifoss, Þjóðveldisbærinn Stöng og Gjáin.

Veiðileyfi og upplýsingar

Ólöf s. 823-2880, [email protected]

Daglegur veiðitími

Morgunvakt

07:00 – 13:00

Kvöldvakt

16:00 – 22:00

Staðsetning

Suðurland

Myndasafn


Fréttir af veiði Stóra-Laxá III

Engin nýleg veiði er á Stóra-Laxá III!

Shopping Basket