Stóra-Laxá fellur um 90 km leið, frá Grænavatni niður á milli Hrunamanna- og Gnúpverjahrepps, í Hvítá hjá Iðu. Hún er dragá, all vatnsmikil með um 512 km2 vatnasvið. Stóra-Laxá er laxgeng langt inn í Laxárgljúfur og því er landslag meðfram henni bæði fjölbreytt og mikilfenglegt. Ánni er skipt í 4 veiðisvæði með alls 10 stöngum. Seldir eru stakir dagar í ána, frá hádegi til hádegis. Meðalveiði er um 1000 laxar en sumarið 2013 var metveiði þegar 1764 laxar komu á land.
Þetta er það svæði sem talið hefur af mörgum eitt fegursta laxveiðisvæði veraldar. Þarna má sjá djúp og há gljúfur með blátærri og seiðandi ánni sem brýst þar í gegn. Veiðin verður seint talin landburður en hver og einn lax sem kemur á land veitir alveg sérstaka ánægju. Aukabónusinn er sá að þarna eru margir “drekar” á sveimi.