Torfastaðir í Sogi

Suðurland
Eigandi myndar: Veidar.is

Veiðitímabil

01 apríl – 25 júní

Leyfilegt agn

Fluga

Fjöldi stanga

2 stangir

Kvóti

Veitt/sleppt

Leiðsögn

ekki í boði

Aðgengi

Fyrir byrjendur, Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi

Verðbil

heill dagur

14000 kr. – 14000 kr.

Veiðin

Sogið er vatnsmesta lindá landsins með fjölmörgum þekktum laxveiðisvæðum og nægir að nefna Alviðru, Ásgarð og Bíldsfell. Silungur, aðallega bleikja, veiðist einnig á þessum laxasvæðum og þá aðallega á vorin og á það einnig við um svæðin Tannastaðatanga og Þrastarlund. Eitt er það svæði sem ekki hefur mikið farið fyrir í gegnum árin og það er Torfastaðir. Það er á milli Alviðru og Bíldfells svæðan, á vesturbakka Sogsins. Svæðið bíður upp á góða bleikjuveiði, sjóbirting og ágæta laxavon, þegar líður á júní. Aðgengi er með besta móti en best er að fara á milli veiðistaða gangandi.

Veiðireglur

Fluga er eina leyfilega agnið á svæðinu, eins og allstaðar í Soginu sjálfu. Öllum laxi skal sleppt aftur og sama gildir um bleikjuna.

Sendið veiðiskýrslu á [email protected]

 

Kort og leiðarlýsingar

Torfastaðasvæðið er á milli Alviðru og Bíldsfells – á vesturbakkanum. Svæðið er um 1.5 km að lengd, með góðu aðgengi að flestum stöðum

 

 

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Selfoss er næsti nærliggjandi bær og einnig stutt í Hveragerði

Veitingastaðir

Stutt er á Selfoss

Þrastarlundur veitingar

Veiðileyfi og upplýsingar

Daglegur veiðitími

Morgunvakt

07:00 – 13:00

Kvöldvakt

16:00 – 22:00

Staðsetning

Suðurland

Vinsælar flugur


Fréttir af veiði Torfastaðir í Sogi

Engin nýleg veiði er á Torfastaðir í Sogi!

Shopping Basket