Vatnamót eru einn besti og gjöfulasti veiðistaður á Íslandi. Þar veiðist aðallega sjóbirtingur, en einnig lax og bleikja. Veiðisvæði Vatnamóta er á söndunum austan Kirkjubæjarklausturs, þar sem Hörgsá, Fossálar og Breiðabakkakvisl ásamt smærri lækjum, sameinast jökulvatni Skaftár. Vatnamótin eru stórt vatnasvæði með mörgum mögulegum veiðistöðum. Sandbotnin er síbreytilegur og verða veiðimenn að leita fyrir sér með líklega veiðistaði. Hægt er að veiða frá bakka á 4-5 km svæði.
Að vinna tvisvar í lottóinu er ótrúlegt
Líkurnar á að veiða sjóbirting yfir 95 sentímetra eru ekki miklar. Sporðaköst höfðu vitneskju um tvo slíka í vor, sem eru staðfestir, þar til í dag að sá þriðji bættist