Haukadalsá á upptök sín í Haukadalsvatni sem er stærsta stöðuvatn Dalasýslu. Vatnið sér ánni fyrir stöðugum vatnsbúskap vel inn í ágúst jafnvel í verstu þurrkasumrum. Áin hefur verið kölluð hin fullkomna fluguveiðiá. Hún er einungis um 8 km löng en þó með um 40 merkta veiðistaði þannig að hér tekur hver veiðistaðurinn við af öðrum. Áin er kjörin fyrir flotlínu og smáar flugur og gárubragðið.
Allt tveggja ára laxar á land í Haukadalsá
„Já við erum að opna Haukadalsá og það eru komnir fjórir laxar á land, allt tveggja ára laxar, en áin opnaði í gærdag,“ sagði Gunnar Helgason leikari, sem er að