20.ára afmælisfagnaður Stangveiðifélags Akureyrar
Stangveiðifélag Akureyrar var 20.ára í vor og býður af því tilefni til afmælis- og fræðslufundar á Hótel KEA laugardaginn 4.nóvember milli kl 14 og 18.
Yfirskrift afmælisfundarins verður: Verndun íslenskra laxfiska.
Fyrirlestrar m.a á vegum NASF. Dagskráin er í smíðum og verður auglýst betur þegar nær dregur.
Veitingar í boði SVAK.
Til að fá einhverja hugmynd um hve margir ætla að mæta væri gott að fá skráningu á [email protected]
Vonumst til að sjá sem flest ykkar.
Stjórn SVAK