Laxárvatn er ein af uppsprettum Laxár í Dölum, er um 0,5 km² að stærð og í um 150m hæð yfir sjávarmáli. Það liggur rétt norðan Laxárdalsvegar, númer 59, nálægt bænum Sólheimum. Góð veiði er í vatninu en þar er einungis urriði. Algeng stærð fiska er 1-3 pund.