Laxárvatn í Dölum

Vesturland
Eigandi myndar: veidikortid.is
Calendar

Veiðitímabil

01 maí – 30 september

Bait

Leyfilegt agn

Fluga, Maðkur, Spúnn
Stop

Kvóti

Ótakmarkað
Information

Leiðsögn

ekki í boði
Accessibility

Aðgengi

Þarfnast leyfi, Jepplingar, Einungis fótgangandi
Dollar

Verðbil

heill dagur

2000 kr. – 2000 kr.

Tegundir

Veiðin

Laxárvatn er ein af uppsprettum Laxár í Dölum, er um 0,5 km² að stærð og í um 150m hæð yfir sjávarmáli. Það liggur rétt norðan Laxárdalsvegar, númer 59, nálægt bænum Sólheimum. Góð veiði er í vatninu en þar er einungis urriði. Algeng stærð fiska er 1-3 pund.

Gisting & aðstaða

Bændagisting

Ferðaþjónustan Erpstöðum, s: 868-0357, west.is  & facebook.com 

Tjaldstæði

Hægt er að tjalda endurgjaldslaust við vatnið á eigin ábyrgð og í samráði við landeiganda, en þar er þó enga hreinlætisaðstöðu að finna.

Veiðireglur

Veiðimenn verða að skrá sig við komu, á bænum Sólheimum, áður en haldið er til veiða en sýna þarf Veiðikortið og skilríki.  Einnig fá veiðimenn veiðiskýrslu sem þarf að skila útfylltri við lok veiða. Öll umferð á mótorhjólum & fjórhjólum er bönnuð nema í samráði við veiðivörð. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd korthafa. Hundar eru bannaðir á svæðinu.

Kort og leiðarlýsingar

Ekið er um Bröttubrekku í áttina að Búðardal, ef komið er að sunnan, annars farið hefðbundnar leiðir frá Norðurlandi eða Vestfjörðum. Rétt áður en komið er að Laxá í Dölum er beygt upp Laxárdalinn og ekið að bænum Sólheimum til að skrá sig. Til að komast að vatninu er best að fara inn á gamlan veg, sem liggur frá þjóðveginum og niður með Lægðarlæk, en þar er hægt að leggja bílum og ganga niður að vatni.

Veiða má í öllu vatninu.

Veiðileyfi og upplýsingar

Laxárvatn er hluti af Veiðikortinu

Daði Einarsson, Lambeyrum s: 863-7702 & Aldís á Sólheimum s: 849-3637

Daglegur veiðitími

Staðsetning

Vesturland

Fréttir af veiði Laxárvatn í Dölum

Engin nýleg veiði er á Laxárvatn í Dölum!

Shopping Basket