Laugarbólsvatn er í Ögurhreppi í N.-Ísafjarðarsýslu. Það er í 41 m hæð yfir sjó og 0,52 km² að flatarmáli. Laugardalsá rennur í gegnum vatnið og því veiðast stöku sinnum laxar í því. Urriði og bleikja eru í Laugarbólsvatni en urriða fer þó fækkandi. Efstadalsvatn er þarna stutt frá, en þar er veiði bönnuð. Vegur 632 liggur að vatninu.