Fyrstu laxarnir komnir í Þverá

Veiðin hófst í Þverá í Borgarfirði í morgun en mun svo hefjast 15. júní í Kjarrá. Og fyrstu laxarnir er komnir  á land og það var verið að landa öðrum laxinum í Ármótakvörn fyrir hadegi. „Já það eru komnir allavega 3 laxar á land og  verið að landi laxi númer 2 hérna í Ármótakvörn,“ sagði Aðalsteinn Pétursson og bætti við; „það var Erik Koberling sem veiddi fiskinn hérna, þetta byrjar vel,“ sagði Aðalsteinn enn fremur.

Þverá  gaf 6 laxa fyrir hádegi en það var sett í amk 10 laxa, sem verður að teljast fín byrjun. 

Ljósmynd/Erik Koberling með fallegan lax úr Þverá

Veiðar · Lesa meira

Þverá & Kjarrá