„Þetta var fínn dagur við Hlíðarvatn í Selvogi og gaman að þessu,” sagði Ingi Már Gunnarsson sem mætti ásamt vöskum veiðimönnum við Hlíðarvatn í morgun en í dag var veiðimönnum boðið frítt að að veiða þar og þáðu margir það. En veiðifélögin við vatnið bjóða upp á þessa veislu einu sinni á ári, frítt fyrir alla.
„Við komum snemma, ég og Gunnar vinur minn, við fengum sinn hvorn fiskinn en frekar smáa fiska en þetta var gaman og við fréttum af nokkrum fiskum sem veiddust. Þegar við vorum að fara heim var veiðimönnum að fjölga við vatnið og eitthvað hafði veiðst,” sagði Ingi Már enn fremur.
Ljósmynd/Veiðimenn að renna fyrir fisk í Hlíðarvatni
Veiðar · Lesa meira