„Við erum að opna Laxá í Dölum og þá kom lax á land eftir tvær mínutur, hann veiddi Ævar Sveinsson í Kristnapolli,“ sagði Jón Þór Júlíusson hjá Hreggnasa í samtali.
Meðal þeirra sem opna Laxá eru Harpa Hlín Þórðardóttir og Stefán Sigurðsson. Harpa missti lax í morgun; „ég missti einn vænan eftir langa baráttu í Mjóhyl, hann vafði línunni um stein og rétti krókinn, helvíti að missa hann,“ sagði Harpa rétt eftir að hún missti laxinn.
Ævar Sveinsson með fyrsta laxinn úr Laxá í Dölum
Veiðar · Lesa meira