Lítil rigning í kortunum – góður matur í veiðihúsinu

Veiðisumarið 2025 hefur farið rólega af stað. Það voru talsverðar væntingar til þess að tveggja ára laxinn myndi skila sér vel í árnar, sér í lagi vestan- og sunnanlands. Það hefur ekki alveg gengið eftir, reyndar hafa skilyrði verið fremur erfið víða, mikil hlýindi vestan lands og lítið vatn í ám í Borgarfirði svo dæmi séu tekin.

Opnanir hafa þó gengið ágætlega víða. Bæði Kjarrá og Norðurá skiluðu flottri veiði í opnun, en reyndar hefur svo aðeins dregið úr veiðinni.  Það var stórstreymt þann 12.júní sl. og svo virðist sem stóri straumurinn hafi ekki skilað þeim stórlaxagöngum sem veiðimenn höfðu vonast eftir. Næsti stóri straumur er þann 26. júní og þá má gera ráð fyrir að smálaxinn fari að sýna sig. 

Ljósmynd/Hafþór Bjarni með smálax úr Festarfljóti

Veiðar · Lesa meira

Hítará