Bubbi byrjaði sumarið með stæl

Veiðin er víða að komast á fleygiferð og Bubbi Morthens var að mæta til veiða í uppáhalds ánni sinni, Laxá í Aðaldal, þar sem hann verður við veiðar næstu daga og hann byrjaði veiðitúrinn með stæl.

“Já þetta byrjaði vel, fékk 93 sentimetra lax  í Brúarstreng  á litla sunray númer 8,“ sagði Bubbi Morthens í samtali og bætti við; „ætli ég hafi ekki verið  með hann á í einar 10 mínutur, tók fast á honum svo fiskurinn fari síður útí. Þetta var bara gaman,“ sagði Bubbi enn fremur.

Ljósmynd/Bubbi Morthens með laxinn úr Laxá í Aðaldal, þann fyrsta á sumrinu

Veiðar · Lesa meira

Laxá í Aðaldal