Hnignun Bleikju – Hvað er til ráða

Bleikjan – Styðjum stofninn eru nýstofnuð félagssamtök sem hafa  það að markmiði að gæta hagsmuna sjóbleikju og meta aðgerðir til að styrkja stofninn.

Í samstarfi við Stangaveiðifélag Akureyrar (SVAK), Veiðifélögin í Eyjafirði og Fiskirannsóknir ehf verður haldin opinn fundur um málefnið 19. apríl næstkomandi.

Staðsetning er Deiglan í Gilinu á Akureyri og hefst fundurinn kl. 20:00

Þar verður stiklað á stóru um þá þætti sem teljast vera orsakavaldar hnignunarinnar og hvað er til ráða. Fundarstjóri er Sigmundur Ófeigsson en mælendur verða Högni Harðarson hjá Fiskirannsóknum ehf og Stefán Sigmundsson.

Boðið verður upp á kaffiveitingar