Kosið um þrjú stjórnarsæti hjá SVFR

Rafræn kosning stendur nú yfir um þrjú stjórnarsæti í stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, SVFR. Kosningu lýkur á morgun þegar aðalfundur félagsins verður haldinn. Sex skipa stjórn félagsins og er kosið að þessu sinni um þrjú sæti.

Stjórn, formaður og framkvæmastjóri félagsins. Frá vinstri. Hrannar Pétursson, Helga Jónsdóttir, Ragnheiður Thorsteinsson, formaður, Dögg Hjaltalín, Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri, Brynja Gunnarsdóttir, Halldór Jörgensson og Trausti Hafliðason. Ljósmynd/SVFR

mbl.is – Veiði · Lesa meira