Ævintýri við Úlfljótsvatn og flottir fiskar

„Það var hæg breytileg átt og stillt veður með smá súld inn á milli,” sagði Daniel G Haraldsson þegar hann fór að veiða á Úlfljótsvatni með vini sínum. „Dagurinn byrjaði með smá dramatík í veiðinni þar sem ég var fisklaus í júlí þetta árið fyrir þennan dag og hefur það aldrei gerst síðan 2007 á mínum ferli. Mér var mikið létt þegar ég setti í fyrsta fiskinn en missti hann mjög snöggt og þá færi ég mig um smá spöl og líður ekki á löngu þar til ég set í annan og missi hann líka eftir smá viðureign. Þá setur félagi minn og lærlingur í fisk og þá á sama tíma set ég í þann þriðja og missi hann um það bil þegar félagi minn háfar sinn en sá fiskur var fljótur að hoppa úr háfnum hans og segja bless eftir klaufaganginn í félaga mínum en þrátt fyrir það þá fór hann heim með bros á vör.

Eftir að ég var búinn að missa þrjá í röð og allt að lifna við fyrir framan mig þá stóð mér ekki á sama, þar sem ég byrjaði með sink tip línu fyrir línu nr.7 og þá tók ég til þess ráðs að fara upp í bíl og skipta um stöng og tefla fram stöng fyrir línu nr.6 og hrein flotlína undir. Ég arka aftur úti og líður ekki á löngu þar til ég set í þann fjórða og næ honum að lokum og þá gat ég andað léttar. Ég færi mig neðar á svæðinu sem við vorum að veiða og næ að krækja upp tveimur í viðbót í leiðinni og gerði þá mikið grín af því að ég væri með 50% nýtingu í aflabrögðum og var það nokkurn veginn útkoma dagsins. En óhöppin gera ekki boð á undan sér.

Minn sómasamlegi veiðifélagi Ómar Geirsson  tók sig til og ætlaði að færa sig um nokkur skref en áttaði sig ekki á hraunbarðinu við fætur hans og snýr sér á hæl og dettur framfyrir sig með svolitlum göslagangi en var stálheppinn að blotna aðeins á ermunum og gat því haldið veiðum áfram. Sá eini sem varð bilt við þessa unaðslegu sunddýfu reyndist vera sími viðkomandi og var hann færður til þerris. 

Daniel G Haraldsson með flotta veiði úr Úlfljótsvatni

Veiðar · Lesa meira

Úlfljótsvatn