„Við fengum eina 53 sentimetra bleikju og misstum aðra svipaða, annars var rólegt í Brúará“ sagði Helgi Stefán Ingibergsson sem var í Brúará. En margir hafa tekið ástfóstri við ána og veiða þar töluvert á hverju sumri. „Það var flott veður fyrri partinn en fór að blása seinni partinn en hiti 10 til 12 gráður. Við komum rauð flekkóttir heim með fínan fisk. Ég hef farið þarna oft áður að veiða en þetta er skemmtileg veiðiá, þetta verður vonandi fyrsta ferðin af mörgum í sumar“ sagði Helgi Stefán ennfremur. „Við ætluðum í Hólaá við Laugarvatn um daginn og þar var fullbókað, það hefur eitthvað veiðst þar já, allavega margir að veiða“ sagði veiðimaðurinn ungi sem sagði ána fullbókaða daginn sem hann ætlaði að renna þar fyrir fisk. Og hann fór bara að veiða í Laugarvatni.
Mynd. Helgi Stefán Ingibergsson með bleikjuna úr Brúará.
Veiðar · Lesa meira