Leiðsögumaðurinn og kastkennarinn Reynir Friðriksson býður nú eins og undanfarin ár uppá námskeið bæði á einhendur og tvíhendur og eru fyrstu námskeiðin á Selfossi 2. til 4. maí nk. Hvert námskeið er um 3 klst og er hámarksfjöldi 6 manns.
Námskeiðin verða fyrir byrjendur og lengra komna og óhætt að segja að nú sé gott að dusta vetrarrykið af veiðigræjunum og byrja að koma sér í gott form fyrir sumarveiðitímann sem er rétt handan við hornið.
Bókanir í síma 861-8281