Fræðslufundur á vegum Stangaveiðifélags Akureyrar (SVAK)
Þann 23. apríl munu þér Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands Veiðifélaga og Högni Harðarson, starfsmaður Fiskirannsókna ehf fjalla um þætti sem varða flesta stangveiðimenn.
Jón Helgi stiklar á stóru um þætti sem varða markaðssetningu og verðlag og kemur víða við. Högni mun fjalla um gerð nýtingaráætlanna, með hagsmuni fiska og stangveiðimanna að leiðarljósi.
Viðburðurinn verður á sal Einingar-Iðju í Skipagötu 14, frá 20:00 – 22:30.
Heitt verður á könnunni og veitingar í boði
Allir Velkomnir!