Geirlandsá er án vafa ein af bestu sjóbirtingsám landsins. Veiðivon er fyrst og fremst mjög vænn sjóbirtingur með þó nokkurri laxveiði og bleikjuvon. Áin er 22 km löng bergvatnsá og á upptök sín í Geirlandsárbotnum sem er í 500-600 m hæð yfir sjávarmáli upp á vesturhálendi Kaldbaks. Fyrir neðan Hagafoss rennur áin í hrikalega fögrum gljúfrum sem breikka svo er neðar dregur en þar rennur áin í sveig um gljúfurbotninn og að lokum um flatlendi á malarbotni og söndum.

Tröll komu syndandi upp ána
„Þetta er fimmta árið mitt í vorveiði í Geirlandsá og það var kominn tími að við fengum gott veður, það var næstum of gott, logn, skýjað og 10° hiti,“ segir Helga Gísladóttir