Allt tveggja ára laxar á land í Haukadalsá

„Já við erum að opna Haukadalsá og það eru komnir fjórir laxar á land, allt tveggja ára laxar, en áin opnaði í gærdag,“ sagði  Gunnar Helgason leikari, sem er að opna Haukadalsá í Dölum í hópi vaskra veiðimanna.

,,Þetta er rólegt en allt í lagi, fékk minn lax í Neðri Brúarhylnum og hann var 79 sentimetrar, bara gaman og fyrsti laxinn hjá mér í sumar. Hann tók rauða frances litla keilu,“ sagði Gunnar í lokin.

Lax sást fyrir nokkru í ánni og síðan er stutt í að Laxá í Dölum opni og fleiri laxveiðiár í Dölunum.  Vatnsmagnið er fínt eftir miklar rigningar og spáin næstu daga er alls ekki þurrkur.

Mynd: Gunnar Helgason með fyrsta laxinn

Veiðar · Lesa meira

Haukadalsá