Nýjar tölur eru komnar á vef Landssambands veiðifélaga og eru þær aðgengilegar á veiðitöluvefnum með því að smella hér. Laxveiðiárnar opna nú hver af annarri og er útlitið víðast hvar gott.
Mikill gangur er í Urriðafossi í Þjórsá en þar gaf vikan 150 laxa og er heildarveiðin komin í 410 fiska. Norðurá er líka á fínni siglingu með vikuveiði upp á 80 laxa og er þá komin í 267 fiska. Almennt er fín veiði í Borgarfirðinum, bæði í bergvatninu og á ármótasvæðunum, Brennu, Straumum og Skugga.
Þjórsá fer vel af stað
Veiðar · Lesa meira