Laxveiðin hefur víða farið verulega rólega af stað eins og Hrútafjarðará en það stendur vonandi til bóta.
Já það hefur verið erfitt í Hrútafjarðará fyrstu dagana en þó hefur flott sjóbleikja niðrí Dumba fengist öðru hverju. En í gær fékk Hafsteinn B. Gunnarsson fyrsta laxinn og það var sannkallaður stórlax! Hængur 95 cm úr Háheyrarhyl á Collie Dog og vonandi bara byrjunin á góðu sumri. Allavega er komin loks einhver úrkoma, sem hefur sárlega vantað.
Veiðar · Lesa meira