„Það gekk frábærlega í dag og veiddust 11 laxar og veiðimenn settu í eina 20 laxa, sem er met hjá okkur á fyrsta degi veiðitímans,” sagði Þröstur Elliðason við Jöklu í kvöld eftir verulega flottan dag.
„Það veiddust 6 laxar fyrir hádegi og 5 eftir hádegi, það rigndi mikið í morgun. Stærsti laxinn er 90 sentímetrar en það eru Spánverjar að opna hjá okkur ána,” sagði Þröstur en lax hefur sést fyrir þó nokkru í ánni.
Ljósmynd/Spánverjar opna Jöklu og þessi veiðimaður, Joseph, veiddi laxinn undir kvöld
Veiðar · Lesa meira